20. júní. 2011 09:01
Á aðalfundi Dýralæknafélags Íslands, sem haldinn var í Stykkishólmi í byrjun þessa mánaðar, lýstu dýralæknar þungum áhyggjum vegna þess hvert stefnir varðandi dýralæknaþjónustu í dreifðari byggðum landsins. Þeir hafa sent frá sér ályktun þar sem skorað er á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að láta málið til sín taka sem allra fyrst, þannig að velferð dýra verði ekki stefnt í voða við þá kerfisbreytingu sem tekur gildi þann 1. nóvember næstkomandi. Sú breyting felur í sér að störf héraðsdýralækna sem sinna bæði opinberu eftirliti og almennri dýralæknaþjónustu verða lögð niður. Þetta á við um héraðsdýralæknana sem nú eru staðsettir í Borgarnesi, Stykkishólmi, Búðardal, á Ísafirði, Hvammstanga, Blönduósi, Húsavík, Egilsstöðum, Breiðdalsvík, Höfn og á Kirkjubæjarklaustri.
Í stað þess koma stærri opinber eftirlitssvæði þar sem Matvælastofnun hefur umdæmisskrifstofur og ákveður stofnunin staðsetningu héraðsdýralækna og annarra eftirlitsaðila sem þar verða ráðnir til opinberra eftirlitsstarfa og sóttvarna.
Þar sem samkvæmt framanrituðu er verið að gera verulegar breytingar á dýralæknakerfinu með því að fækka héraðsdýralæknum sem áður hafa annast þjónustu við dýraeigendur telja dýralæknar nauðsynlegt að gefin verði út reglugerð um hvernig dýraeigendum í hinum dreifðu byggðum landsins verði tryggð dýralæknaþjónusta. Til að ná markmiðum greinarinnar um að tryggja dreifðum byggðum reglubundna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu verði að stuðla að því að fyrir hendi verði nauðsynleg starfsaðstaða fyrir sjálfstætt starfandi dýralækna á Snæfellsnesi, í Dalasýslu, á Vestfjörðum, í Austur- og Vestur-Húnavatnssýslum, í Suður- og Norður-Þingeyjarsýslum,í Norður- og Suður-Múlasýslum og í Austur- og Vestur-Skaftafellssýslum. Að öðrum kosti sé ekki tryggt að dýralæknaþjónustan verði nægileg til að tryggja heilbrigði og velferð dýra.