23. júní. 2011 10:38
Þjóðskrá Íslands birtir í dag fasteignamat fyrir árið 2012. Það miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2011 og er nú í fyrsta sinn birt á Vefnum. Tilkynning um fasteignamat 2012 verður ekki send út í hefðbundnum bréfapósti. Meginniðurstöður fasteignamats er að heildarmat fasteigna á landinu öllu hækkar um 6,8%. Heildarmat íbúðarhúsnæðis á landinu öllu hækkar um 9%. Fasteignamat íbúða í sérbýli hækkar meira en íbúða í fjölbýli, eða um 10,4% í sérbýli á landinu öllu og um 7,3% í fjölbýli. Svipuð hækkun er nú á fasteignamati á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 6,3%. Mesta hækkun á landinu er á Norðurlandi vestra (11,9%) en minnsta hækkunin er á Austurlandi (2,8%). Hækkun fasteignamats í öðrum landshlutum er sem hér segir: Suðurnes (4,3%), Vesturland (9,6%), Vestfirðir (9,9%), Norðurland eystra (9,4%) og Suðurland (9,9%).
Fasteignamat íbúðarhúsa á jörðum og annars íbúðarhúsnæðis í dreifbýli breytist yfirleitt mun meira en mat á öðrum eignum árið 2012. Það stafar meðal annars af því að aðferðir við mat á þessum eignum voru verulega endurbættar og þar með má segja að matsaðferðir fyrir allt íbúðarhúsnæði á landinu hafi nú verið endurskoðaðar í samræmi við lög sem tóku gildi 2009. Meðal annars vegna þessa er hlutfallsleg hækkun fasteignamats íbúðarhúsnæðis mun meiri í tilteknum sveitarfélögum í dreifbýli en í öðrum. Dæmi um þetta er Helgafellssveit (72,6%), Ásahreppur (47%), Húnavatnshreppur (28,6%) og Súðavíkurhreppur (21,1%).
Lög kveða á um að fasteignamat á hverjum tíma skuli endurspegla markaðsverðmæti (staðgreiðsluverð) fasteignar. Fasteignamat íbúðarhúsnæðis fyrir árið 2010 var hið fyrsta sem unnið var í samræmi við nýju lögin og þetta er því í þriðja sinn sem fasteignir eru metnar á þennan hátt í stað þess að framreikna matið frá ári til árs í samræmi við verðlagsbreytingar. Mat íbúðarhúsnæðis 2012 byggist á yfir 34.000 kaupsamningum frá júlí 2005 til apríl 2011. „Fasteignamarkaðurinn er greinilega að taka við sér á ný eftir hrun. Til marks um það er að um 800 kaupsamningar voru gerðir á fyrsta ársfjórðungi 2009, um 1.000 á fyrsta ársfjórðungi 2010 og um 1.300 á fyrsta ársfjórðungi 2011. Líflegri fasteignamarkaður styrkir grunn fasteignamatsins,“ segir í tilkynningu frá Þjóðskrá.
Alls eru skráðar tæplega 125.000 íbúðir á Íslandi. Samanlagt fasteignamat þeirra er um 2.600 milljarðar króna en verður um 2.850 milljarðar króna samkvæmt mati ársins 2012; það hækkar með öðrum orðum um 9%. Fasteignamat á um 120.000 íbúðum hækkar (96% íbúðarhúsnæðis í landinu), mat á um 4.500 íbúðum lækkar en mat á um 550 íbúðum er óbreytt.