09. ágúst. 2011 07:01
Miðvikudaginn 27. júlí sl. fór fram á vegum forvarnarhóps Borgarbyggðar könnun á aðgengi unglinga að tóbaki í nokkrum verslunum og veitingastöðum í sveitarfélaginu. Könnunin er gerð þannig að unglingar eru fengnir til að reyna að kaupa tóbak. Af þeim tíu stöðum sem farið var á, og selja tóbak, var farið að lögum á sex stöðum og krökkunum ekki selt tóbak. Á fjórum stöðum var hins vegar ekki farið að lögum og börnunum selt tóbak. Könnunin var framkvæmd af Sigurþóri Kristjánssyni forstöðumanni félagsmiðstöðvarinnar Óðals, með aðstoð tveggja unglingsstúlkna frá Akranesi.
Að sögn Ingu Vildísar Bjarnadóttur forvarnarfulltrúa Borgarbyggðar hefur verið sent bréf til rekstraraðila um útkomu fyrirtækja þeirra og í þeim tilfellum sem við á eru þeir hvattir til að bæta vinnureglur varðandi sölu á tóbaki svo þær standist lög um tóbaksvarnir. Samskonar könnun hefur verið gerð undanfarin ár og svo virðist sem það hafi jákvæð áhrif og veki rekstraraðila til umhugsunar, að sögn Ingu Vildísar.