04. október. 2011 08:01
Innflutt hráefni til fiskvinnslu var rúm 80 þúsund tonn á síðasta ári og jókst í magni um 37 þúsund tonn frá fyrra ári, eða alls um 84%. Verðmæti þessa innflutnings var 8,2 milljarðar króna sem er tæplega tveimur milljarða króna hærri fjárhæð en árið 2009 á verðlagi hvors árs og 31% hærra á föstu verðlagi ársins 2010 miðað við verðvísitölur sjávarafurða. Innflutningur jókst á loðnu, loðnuhrognum, kolmunna, makríl og rækju en minna var flutt inn af þorski, ufsa, steinbít, hlýra, síld og norsk-íslenskri síld en árið áður. Verðmæti innflutts hráefnis nam alls 10% af verðmæti þess afla sem tekinn var til vinnslu hérlendis. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni.