06. október. 2011 06:45
Í nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2012 er sjúkrastofnunum landsins gert að taka á sig umtalsverðan niðurskurð á næsta ári. Þannig er Heilbrigðisstofnun Vesturlands gert að skera niður um 95 milljónir króna en rekstrarstaða stofnunarinnar á þessu ári er þegar mjög erfið. Ásgeir Ágeirsson framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar á HVE sagðist í samtali við Skessuhorn hafa átt von á þessum niðurskurði. “Það var búið að vara okkur við svo þetta kom í raun ekkert á óvart. Nú er staðan hins vegar orðin þannig að við neyðumst til að skerða þjónustu við íbúa svæðisins. Við erum þegar búin að ganga í allar almennar aðhaldsaðgerðir og almennar launalækkanir svo ég get ekki séð annað en við þurfum að breyta þjónustustiginu. Ekki er hægt að reka stofnunina óbreytta.”
Þetta er fjórða árið í röð sem Heilbrigðisstofnun Vesturlands er gert að skera umtalsvert niður og segir Ásgeir óhætt að fullyrða að á síðastliðnum árum hafi verið skorið niður um allt að 25% hjá stofnuninni. Niðurskurðurinn nú nemur 1,5% af framlögum síðasta árs en við það bætast um 54 milljónir sem voru geymdar. Samtals verður því skorið niður um 95 milljónir sem gera 3,5% skerðingu frá 2011. Að sögn Ásgeirs má nánast tvöfalda þessa tölu því rekstrarhalli stofnunarinnar stefnir í 50-80 milljónir á þessu ári. “Framkvæmdastjórn HVE liggur yfir þessum tölum þessa dagana og leitar leiða til að mæta þessum niðurskurði og enn hefur ekki fengist niðurstaða í málið,” sagði Ásgeir.