09. október. 2011 11:49
Víkingur AK er nú um hádegisbil væntanlegur til Vopnafjarðar með um 1.000 tonn af stórri og fallegri loðnu sem fékkst í grænlenskri lögsögu aðfararnótt föstudags og laugardags. Að sögn Guðmundar Hafsteinssonar, stýrimanns á Víkingi, er ástandið á miðunum með ágætum. Það lóði á loðnutorfur á þónokkuð stóru svæði en torfurnar mættu vera þéttari. Skipið fór til loðnuleitar út af Vestfjörðum um sl. helgi en úthaldið þá varð skammvinnt vegna brælu. Áður en veður versnaði varð vart við álitlegar lóðningar en enginn afli fékkst áður en skipinu var haldið til hafnar á Ísafirði þar sem þess var beðið að veðrið gengi niður. Víkingur fór að nýju til veiða á fimmtudaginn. Guðmundar segir á vef HB Granda að loðnan hafi haldið sig allt frá yfirborði og niður á um 100 faðma dýpi á nóttunni en á daginn hefur hún dýpkað á sér en þó verið veiðanleg. Sem fyrr segir er loðnan væn eða um 42 stykki í kílói að jafnaði. Það mun ráðast af gæðum loðnunnar við löndun hvernig aflanum verður ráðstafað.