10. október. 2011 02:53
Samstætt markaðsverkefni „Ísland – allt árið” miðar að því að efla vetrarferðaþjónustu og jafna árstíðarsveiflu í íslenskri ferðaþjónustu. Verkefnið mun byggja á grunni vörumerkisins Inspired by Iceland. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja allt að 300 milljónum árlega næstu þrjú ár í markaðsverkefni í vetrarferðaþjónustu, gegn mótframlagi frá einkaaðilum. í dag var verkefninu formlega ýtt úr vör við undirskrift samnings í Hörpu. Um leið kynnti Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra haustátak verkefnisins sem mun standa fram að áramótum. Aðstandendur verkefnisins eru iðnaðarráðuneytið, fjármálaráðuneytið, Icelandair, Reykjavíkurborg, Iceland Express, Isavia, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök verslunar og þjónustu. Íslandsstofa mun annast framkvæmd verkefnisins, en alls hafa rúmlega 100 fyrirtæki staðfest þátttöku.