21. október. 2011 09:01
Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar 18. október sl. var formlega samþykkt ný forvarnastefna í málefnum barna, unglinga og ungmenna í sveitarfélaginu. „Fjölskyldan, skólinn og skipulegt félagsstarf skipta meginmáli í uppvexti ungs fólks. Styrkur þeirra og öflugt samstarf getur ráðið úrslitum í því að bægja frá óæskilegum áhrifum sem leitt geta til áhættuhegðunar barna og unglinga á borð við neyslu fíkniefna,“ segir í upphafsorðum stefnu sveitarfélagsins.
Þá segir að sýnt hafi verið fram á að líkur á vímuefnaneyslu minnka eftir því sem tengsl barna og foreldra eru sterkari og samverustundir fjölskyldunnar fleiri. Einnig hefur skipulögð íþrótta- og tómstundastarfsemi jákvæð áhrif á lífsstíl ungmenna. Skólar gegna lykilhlutverki í lífi fjölskyldunnar og nauðsynlegt er að þeir hafi skýra forvarnastefnu.
Mikilvægar stofnanir sem að forvörnum koma eru skólar, félagsmiðstöðvar, foreldrafélög, félagsþjónusta, heilsugæsla, íþróttafélög, lögregla, trúfélög, félagasamtök og nemendafélög. Samstarfsnefnd um forvarnir í Borgarbyggð vinnur að því að samvinna sé á milli þessara aðila um markvisst og árangursríkt samstarf.
Lesa má nánar um leiðarljós forvarnastefnu Borgarbyggðar inni á vef sveitarfélagsins; www.borgarbyggd.is