18. maí. 2012 10:51
„Við erum farnir að ramma inn liðið fyrir næsta tímabil og stefnum að því að Skallagrímur skapi sér sess í úrvalsdeildinni, því þar eigum við heima,” segir Björn Bjarki Þorsteinsson sem nýlega tók við formennsku í körfuknattleiksdeild Skallagríms. Um miðja síðustu viku var skrifað undir samninga við fimm leikmenn til viðbótar við þá Andrés Kristjánsson, Davíð Guðmundsson og Lloyd Harrison, sem áður var búið að semja við. Leikmennirnir fimm eru Egill Egilsson, Davíð Ásgeirsson, Birgir Þór Sverrisson, Sigurður Þórarinsson og Orri Jónsson. Allir léku þeir með Skallagrími þegar liðið vann sig upp um deild í vor nema Orri sem spilaði með liði FSu síðasta vetur. Orri, sem er frá Lundi í Lundarreykjardal, var einn af lykilleikmönnum FSu með 15,7 stig að meðaltali í leik.
Bjarki formaður segir að á næstunni megi búast við fleiri fréttum af leikmannamálum Skallagríms, en ljóst er að sami kjarni og kom liðinu upp á síðasta tímabili muni haldast. Á formannafundi KKÍ fyrir skömmu var samþykkt að vinna að breytingu reglna varðandi erlenda leikmenn, þannig að aðeins tveir með erlent ríkisfang megi vera inni á vellinum í einu. Þessi regla á að sögn Bjarka að koma í veg fyrir að lið í efstu deild séu nánast að fylla byrjunarliðin með erlendum leikmönnum.