23. ágúst. 2012 04:01
Eins og undanfarin ár hafa Bændasamtök Íslands tekið saman lista yfir helstu fjárréttir og stóðréttir á landinu á komandi hausti. Hér að neðan má sjá fjárréttir haustsins í stafrófsröð, skv. lista Bændablaðsins sem kom út í dag. Tekið er fram að alltaf geta slæðst villur í lista af þessu tagi. Því er þeim sem hyggjast kíkja í réttir á komandi hausti bent á að gott getur verið að hafa samband við heimamenn og fá staðfestingu á dagsetningum og tímasetningu réttanna. Einnig er fjallskilastjórum, sem og öðrum sem hafa upplýsingar um réttir sem ekki koma fram á listanum eða vilja leiðrétta rangfærslur, bent á að hafa samband við Bændasamtökin í síma 563-0300 eða í tölvupóstfangið fr@bondi.is.
Samkvæmt samantekt Bændasamtakanna eru eftirfarandi fjárréttir á Vesturlandi haustið 2012:
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. sunnudag 16. sept.
Brekkurétt í Saurbæ, Dal. sunnudag 16. sept.
Fellsendarétt í Miðdölum sunnudag 16. sept.
Flekkudalsrétt á Fellsströnd, Dal. laugardag 15. sept.
Fljótstungurétt í Hvítársíðu, Borgarf. laugardag 8. september.
Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal. sunnudag 16. sept.
Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr. þriðjudag 18. sept.
Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr. mánudag 17. sept.
Hólmarétt í Hörðudal sunnudag 16. sept.
Hreppsrétt í Skorradal, Borg. sunnudag 16. sept.
Kaldárbakkarétt í Kolb., Hnappadalssýslu sunnudag 9. sept.
Kinnarstaðarrétt í Reykhólahr., A-Barð. sunnudag 23. sept.
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal. laugardag 15. sept.
Kollafjarðarrétt í Reykhólahr., A-Barð. laugardag 15. sept.
Króksfjarðarnesrétt í Reykhólasv., A-Barð. laugardag 22. sept.
Ljárskógarétt í Laxárdal, Dal. Ekki ljóst
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V.-Hún. laugardag 8. sept.
Mýrdalsrétt í Hnappadal þriðjudag 18. sept.
Nesmelsrétt í Hvítársíðu, Mýr. laugardag 8. sept.
Núparétt á Melasveit, Borg. sunnudag 16. sept.
Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. miðvikudag 12. sept.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. sunnudag 16. sept.
Reynisrétt undir Akrafjalli, Borg. laugardag 15. sept.
Skarðsrétt á Skarðsströnd, Dal. laugardag 15. sept.
Skerðingsstaðarétt í Hvammsveit, Dal. sunnudag 16. sept.
Svarthamarsrétt á Hvalfj.str., Borg. sunnudag 16. sept.
Svignaskarðsrétt, Svignaskarði, Mýr. mánudag 17. sept.
Tungurétt á Fellsströnd, Dal. laugardag 8. sept.
Þverárrétt Eyja- og Miklaholtshr, Snæf. sunnudag 16. sept.
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr. mánudag 17. sept.