05. nóvember. 2012 10:01
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar tekur undir bókun bæjarráðs Reykjanesbæjar, og styður heilshugar þau sjónarmið sem koma fram í frumvarpi SÁÁ undir heitinu „Betra líf“. Markmið frumvarpsins er að gerbylta lífsgæðum þeirra sem þjást vegna áfengis- og vímuefnavandans og bæta með því samfélagið allt. „Áfengis- og vímuefnasýki er sá sjúkdómur sem hefur mest áhrif á flestar fjölskyldur á Íslandi. Mikilvægt er að endurheimta ómæld verðmæti sem í þeim einstaklingum búa sem enn þjást vegna áfengis- og vímuefnavandans. Mun það hafa margföld jákvæð áhrif á líf alls almennings. Mikilvægt er að sveitarfélög og ríki taki höndum saman með SÁÁ um vinnu að þessum málum. Fjármunir til þessa verkefnis eru til í gegnum áfengisgjald sem þegar er innheimt,“ segir í bókun bæjarstjórnar Snæfellsbæjar í liðinni viku. Jafnframt var samþykkt á fundinum að fá undirskriftalista og láta hann liggja frammi á bæjarskrifstofu Snæfellsbæjar.