05. nóvember. 2012 12:01
Næsti fyrirlestur á vegum Snorrastofu í Reykholti verður á morgun, þriðjudaginn 6. nóvember, kl. 20:30. Hann flytur Ragnhildur Helga Jónsdóttir umhverfislandfræðingur og er hann helgaður því merkilega starfi sem unnið hefur verið síðustu 20 árin við skráningu á örnefnum í Borgarfirði. Ekki hefur verið látið nægja að leita eftir þekkingu á þeim til skráningar heldur hafa þau einnig verið færð inn á kort í örnefnasjá Landmælinga Íslands og eru þannig tiltæk öllum sem áhuga hafa. Ætla má að vinnan verði lykill að margvíslegu þróunarstarfi við leiðsögn ferðamanna um svæðið og miðlun menningarverðmæta þess, sögu og sögnum. Það er Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum, sem farið hefur fyrir verkefninu en það hefur einnig verið unnið sem BS-verkefni í landafræði við Háskóla Íslands.
Reynslan hefur sýnt að það er hver að verða síðastur að ná til heimildarmanna sem þekkja örnefnin og staðsetningu þeirra. Verkefnið hlaut Borgfirsku menningarverðlaunin á nýliðnu hausti, úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar og Ingibjargar Sigurðardóttur frá Kirkjubóli.
Ragnhildur Helga Jónsdóttir er umhverfislandfræðingur að mennt, með meistarapróf frá Háskóla Íslands. Hún starfar sem sérfræðingur í sögu landnýtingar á Íslandi. Það eru Snorrastofa, Landbúnaðarsafn Íslands og Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum sem tekið hafa höndum saman og standa að fyrirlestrinum, en Menningarráð Vesturlands styrkir viðburðinn. Hann hefst kl. 20:30 og að venju boðið til kaffiveitinga og umræðna að honum loknum. Aðgangseyrir er kr. 500.