07. nóvember. 2012 12:01
Leikdeild ungmennafélagsins Íslendings í Borgarfirði frumsýnir leikritið Smáborgarabrúðkaup (A Respectable Wedding) eftir þýska leikritaskáldið Bertolt Brecht. Þetta er gamanleikrit sem gerist í brúðkaupsveislu ungra hjóna. Veislan byrjar vel en síðan fer ýmislegt á annan veg en áætlað var. Þetta er skemmtilegt verk sem kitlar hláturtaugar áhorfenda. Leikarar eru níu, fjórar konur og fimm karlar. Leikstjóri verksins er Ingrid Jónsdóttir. „Leikritið verður fært í nútímalegan búning og staðfært eins og hægt er. Þó að verkið hafi verið skrifað snemma á tuttugustu öldinni þá er vel hægt að heimfæra það upp á nútímann. Sjón er sögu ríkari,“ segir í tilkynningu frá leikdeild umf. Íslendings.
Sýningar eru sem hér segir:
Frumsýning föstudaginn 9. nóvember kl 21:00
2. Sýning sunnudaginn 11. nóvember kl 21:00
3. Sýning fimmtudaginn 15.nóvember kl 21:00
4. Sýning föstudaginn 16. nóvember kl 21:00
5. Sýning sunnudaginn 18. nóvember kl 21:00
Miðapantannir eru hjá Valda og Þórnýju í Álfhól, Hvanneyri í síma 437-1910 eða í gegnum netfangið: valdi@skogur.is