11. desember. 2012 02:45
Lið ÍA í 1. deild karla í körfubolta fékk lið Vals frá Reykjavík í heimsókn á föstudaginn í Íþróttamiðstöðina á Jaðarsbökkum. Gestirnir reyndust einu númeri of stórir fyrir Skagamenn í leiknum því Valsmenn höfðu forystu allan leikinn. Strax í fyrsta leikhluta náðu þeir tuttugu stiga forystu sem skóp rúmlega þrjátíu stiga sigur þeirra að endingu, 62:91. ÍA er því áfram án stiga í 1. deild meðan Valsmenn halda toppsæti hennar með fullt hús stiga en þeir eru taplausir á tímabilinu. Stigahæstur Skagamanna í leiknum var Sigurður Rúnar Sigurðsson með 15 stig en á eftir honum kom Lorenzo Lee McClelland með 12. Ómar Örn Helgason skoraði 12 stig og þá skoruðu Hörður Nikulásson 9, Áskell Jónsson og Erlendur Ottesen 6 hvor og Þorleifur Baldvinsson 2.
Síðasti leikur Skagamanna fyrir áramót fer fram annað kvöld, miðvikudag, þar sem liðið mætir Augnabliki á útivelli í Kópavogi. Leikurinn hefst kl. 19:15.