17. desember. 2012 11:30
Bæjarstjórn Akraness ákvað á lokuðum fundi sínum í gær, sunnudaginn 16. desember, að Jón Pálmi Pálsson bæjarritari og settur bæjarstjóri verði tímabundið leystur frá vinnuskyldu, vikuna 17.-21. desember 2012. „Ástæðan er sú að vaknað hefur grunur að um geti verið að ræða brot á starfsskyldum. Nú fer í gang skoðun á málavöxtum og mun bæjarstjórn taka frekari ákvarðanir á grundvelli niðurstaðna hennar, gefi hún tilefni til.
Jafnframt ákvað bæjarstjórn að Andrés Ólafsson gegni skyldum bæjarritara þessa viku,“ segir í yfirlýsingu frá bæjartjórn Akraness.