19. desember. 2012 12:42
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir steingráum Volkswagen Polo árg. 2012 með skráningarnúmerið DF-F11, en bílnum var stolið í Reykjavík í lok nóvember. Nú hefur komið fram að bílnum var ekið við Fiskilæk í Melasveit laugardaginn 8. desember kl. 18.49. Mynd náðist af bílnum í hraðamyndavél sem þar er og er hún birt hér með fréttinni. „Þeir sem geta gefið upplýsingar um manninn á myndinni, eða vita hvar bíllinn er niðurkominn, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.