19. desember. 2012 01:09
Björgunarsveitamenn af höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið að Múlafjalli í Hvalfirði til að sækja slasaðan mann. Maðurinn, sem er björgunarsveitamaður, var á leið á ísklifursæfingu með félögum sínum og á leið sinni að klifurstaðnum studdi hann sig við stein sem fara þurfti fram hjá. Ekki vildi betur til en að steinninn, sem væntanlega vegur hátt á annað hundrað kíló, rann af stað og tók manninn með sér niður brekkuna. Við það slasaðist hann á öxl. Félagar hans halda á honum hita á meðan beðið er aðstoðar en flytja þarf þann slasaða á börum niður á sléttlendi. Böruburður í fjallendi er erfiður og þarf mikinn mannskap í slíkt verk, segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.