04. mars. 2013 08:01
Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í janúar á þessu ári að jafnaði 177.800 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 167.400 starfandi og 10.400 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuleysi var 5,8%, en í janúar 2012 mældist það 6,7% og hefur það því lækkað um 0,9 prósentustig. Atvinnuleysi meðal karla í janúar á þessu ári mældist 6,4% miðað við 6,6% janúar 2012 og meðal kvenna var það nú 5,3% en var 6,9% í janúar á síðasta ári.