08. mars. 2013 02:01
Starfsbraut Menntaskóla Borgarfjarðar leitaði fyrir lok síðasta árs til Lionsklúbbsins Öglu um styrk til kaupa á Ipad spjaldtölvu og kennsluforritinu Clicker 6. Klúbburinn brást vel við erindinu og hefur nú fært starfsbrautinni þessa höfðinglegu gjöf. Á heimasíðu skólans segir að Ipad spjaldtölvan henti vel við kennslu nemenda með sérþarfir og mikið er til af kennsluforritum fyrir slíka tölvur. Clicker 6 er verðlaunaforrit í læsi sem gerir nemendum á mismunandi getustigum kleift að þróa og þroska hæfni sína í læsi og ritun með því að vinna í þverfaglegum verkefnum með texta, myndum og talendurgjöf. Með forritinu er hægt að búa til og aðlaga námsefni að þörfum nemenda með ýmsar sérþarfir til að þeir nái betri tökum á ritun og læsi.
Nemendur starfsbrautar Menntaskóla Borgarfjarðar eru nú sjö talsins og starfsmenn þrír. Aðalbjörg Þórólfsdóttir þroskaþjálfi er umsjónarmaður starfsbrautar, Guðný Sigríður Gunnarsdóttir sérkennari og Álfheiður Sverrisdóttir stuðningsfulltrúi. Að sögn Aðalbjargar munu þessi nýju tæki hafa góð áhrif á nám og kennsluhætti á starfsbrautinni og þakkar hún, fyrir hönd starfsbrautarinnar, Ögluklúbbnum fyrir góð viðbrögð og rausnarskap.