08. mars. 2013 12:01
Tónlistarfélag Borgarfjarðar efnir til tónleika í Reykholtskirkju sunnudaginn 10. mars næstkomandi. Þóra Einarsdóttir sópransöngkona flytur fjölbreytta dagskrá við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. Á efnisskránni verða lög eftir Mozart, Schubert, Faure, Debussy, Þorkel Sigurbjörnsson og fleiri. Þóra og Jónas eiga langt og farsælt samstarf að baki. Þóra er í fremstu röð íslenskra söngvara um þessar mundir. Hún hefur sungið við virt óperuhús í Evrópu og komið fram sem einsöngvari með hljómsveitum og kórum víða um lönd. Jónas Ingimundarson hefur verið í hópi bestu píanóleikara hér á landi um áratugaskeið. Bæði eru þau Borgfirðingum að góðu kunn og hafa áður komið fram á tónleikum Tónlistarfélags Borgarfjarðar.