08. ágúst. 2003 03:09
Stjörnugrís hf. sækir um lóð undir fóðurskemmu
Stjörnugrís hf. hefur sent Akraneskaupstað umsókn um lóð undir a.m.k. 1500 fermetra húsnæði sem fyrirtækið ætlar að nýta undir fóðurskemmu. Standa óskir fyrirtækisins til að lóðin verði staðsett á hafnarsvæðinu þannig að flutningar á fóðri í húsnæðið verði sem allra minnstur. Áætlar fyrirtækið að flytja inn 1800-2000 tonn á þriggja til fjögurra mánaða fresti. Stjörnugrís hf. er með umfangsmikla framleiðslu á svína- og alifuglakjöti og eru starfsstöðvar þess á Vallá á Kjalarnesi og Melum í Melasveit. Að sögn Gísla Gíslasonar, formanns hafnarstjórnar, verður umsóknin rædd á fundi stjórnarinnar í vikunni og átti hann ekki von á öðru en að menn tækju jákvætt í óskir Stjörnugríss hf. Nákvæma staðsetningu lóðarinnar á hafnarsvæðinu ætti eftir að ræða við fyrirtækið en nokkrir álitlegir staðir koma til greina.