04. október. 2003 07:10
Aukin umferð um þjóðgarðinn
Sumarvertíðin í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli gekk vel í sumar að því er fram kemur í fréttablaðinu Jökli í Snæfellsbæ. Veðrið spillti að sjálfsögðu ekki fyrir. Ekki liggja fyrir tölur um fjölda ferðamanna í þjóðgarðinn en að sögn þjóðgarðsvarðar var mikil umferð um svæðið og stóraukin aðsókn í viðburði á vegum þjóðgarðsins.
Boðið var upp á gönguferðir fjórum sinnum í viku og barnastundir þrisvar í viku.
Fyrsti landvörðurinn kom til starfa í lok maí og sá síðasti fór í lok ágúst. Yfir vetrartímann er hinsvegar aðeins einn starfsmaður við þjóðgarðinn.
Eins og áður hefur komið fram í Skessuhorni komu fimm erlend ungmenni í þjóðgarðinn sem sjálboðaliðar í vikutíma og löguðu þau m.a. göngustíginn niður á Djúpalónssand. Þá lét Ferðamálaráð setja upp snyrtingar við Djúpalónssand og auglýsingaskilti við bílaplan.