21. mars. 2003 09:15
Gremst neikvæð umræða
„Gæðin hafa allt um það að segja hvort verksmiðjan sé samkeppnisfær við erlenda aðila,“ segir Baldur Ketilsson einn starfsmanna Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Hann segir að neikvæð umræða um verksmiðjuna hafi farið fyrir brjóstið á sér og öðrum starfsmönnum og telur fráleitt að verkmiðjan á núverandi stað sé tímaskekkja. „Við erum með góða vöru í höndunum og það skiptir að mínu mati mestu máli. Mér líst ekki á hugmyndir um að rífa verksmiðjuna og reisa hana að hluta til annarsstaðar. Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum er hagkvæmara að framleiða gjallið hér á landi en flytja það inn og þar fyrir utan eru fjölmörg störf í húfi. Þá held ég að hugmyndir um íbúðabyggð á verksmiðjusvæðinu séu ekki hugsaðar nema hálfa leið. Ég veit t.d. ekki hvort menn ætla að rýma húsin þegar sjóinn skefur yfir Faxabrautina. Ef lóðabraskið á að hafa forgang þá hljóta menn líka að líta til þess að íþróttasvæðið er eitthvert ákjósanlegasta byggingalandið og það er ekki nýtt nema nokkra mánuði á ári,“ segir Baldur.