21. maí. 2003 11:49
Vinna við stofnun framhaldsskóla í fullum gangi
Á mánudag og þriðjudag fór fram umfagnsmikil hópvinna í Grundarfirði til undirbúnings stofnun framhaldsskóla á Snæfellsnesi Sautján manna hópur ásamt bandarískum sérfræðing, Susan Stuebing, vinnur að því að móta starfsemi skólans. Í vinnuhópnum eru fulltrúar í framhaldsskólanefndinni, fulltrúar frá menntamálaráðuneyti, fulltrúar foreldra, kennari, skólameistari, og kennsluráðhgjafi frá HÍ auk formanns húsnæðisnefndar Fjölbrautaskóla Snæfellinga og Hrannar Pétursdóttur sem er starfsmaður verðandi framhaldsskóla.
“Þetta verkefni er bæði spennandi og krefjandi, enda á að fara nýjar leiðir í starfsemi skólans,” segir Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í Grundarfirði og formaður framhaldsskólanefndarinnar. “Það sem er framundan hjá okkur er að vinna hugmyndir að því hvernig skóliþetta verður. Hópurinn sem kemur að þessari vinnu er mjög fjölbreyttur þvímarkvisst er leitast við að fá sjónarmið og hugmyndir ólíkra hagsmunaaðila á borðið.” Að sögn Bjargar var tilgangurinn með hópstarfinu meðal annars að þróa sameiginlega sýn fyrir hinn nýja skóla aog þróa þá starfsemi sem þar mun eiga sér stað. Annar vinnufundur verður haldinn á miðju sumri og sá þriðji í haust.