16. júní. 2003 03:49
Ekki ljóst hversu mikill kvóti kemur í staðinn
Eins og óttast hafði verið leggur Hafrannsóknarstofnun til veiðibann á Hörpudiski á næsta fiskveiðiári í nýrri skýrslu um nytjastofna sjávar og aflahorfur. Samkvæmt skýrslu sem atvinnuráðgjöf Vesturlands vann fyrir Stykkishólmsbæ í vetur er gert ráð fyrir að tekjur atvinnusvæðisins muni skerðast um allt að 750 milljónir vegan veiðibannsins. Þá er reyndar ekki tekið tillit til mótvægisaðgerða sem að öllum líkindum verða tímabundinn kvótaaukning í öðrum fisktegunudum.
Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri Stykkishólms segir það liggja fyrir skelvinnslufyrirtækin í Stykkishólmi fái úthlutað viðbótarkvóta í öðrum tegundum en ekki liggi fyrir að nánari útfærsla eða um hversu mikinn kvóta sé að ræða.
„Við vitum að verið er að vinna í málinu en engin ákvörðun hefur verið tekin. Við vitum líka að áhrifin verða umtalsverð og þótt við höfum svosem vitað að hverju stefndi þá voru þetta afleitar fréttir sem biðu okkar þegar við komum heim frá vinabæjarmóti í Svíþjóð um helgina.“
Óli Jón segir ekki hægt að segja til um áhrifin af veiðibanninu á þessu stigi. „Það fer eftir því hversu miklar bæturnar verða og hvernig fyrirtækjunum tekst að nýta sér þann kvóta sem þau fá. Það veltur með öðrum orðum að miklu leyti á því hvað aukinn kvóti í öðrum fisktegundum leiðir af sér mikla landvinnslu. Fulltrúar bæjarins og útgerðarfyrirtækjanna munu hittast á mánudag og þá verður farið yfir þessi mál,“ segir Óli Jón.