01. desember. 2003 02:46
Nýsmíði eftir langt hlé
Í vikunni sem leið fékk skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi pólskan skipsskrokk afhentan. Það voru dráttarbátar frá Akraneshöfn, Þjótur og Leynir sem drógu skrokkinn á Skagann frá Hafnarfirði. Starfsmenn Þ&E munu nú taka við og klára innréttingasmíði, setja upp vélar, dælur og skrúfur. Það er færeyskt útgerðarfélag sem á togarann. Í Hafnarfirði er nú verið að gera samskonar smíði á systurskipi fyrir Færeyingana.
Flutningurinn gekk vel miðað við árstíma og komu allir heilir í höfn.
Langt er liðið frá síðasta nýsmíðaverkefni Þ&E en 1996 var smíðað lítið togskip fyrir þróunaraðstoð í Afríku. Nýi togarinn er öllu stærri í sniðum eða 36,5 metrar að lengd og 8,5 á breidd, það stór að hann mun ekki komast allur undir þak í skipasmíðastöðinni.
Nú er verið að klára sandblástur og verður báturinn færður inn í kjölfarið. Færeyingarnir munu fá skipið afhent fullbúið næsta vor. 30 manns starfa nú í skipasmíðastöðinni og tryggir þetta verkefni þeim næga vinnu í allan vetur. Auk starfsmanna Þ&E og Skagans sér Straumnes um rafmagnið, trésmíðin fer hins vegar fram í Reykjavík og er það Stálsmiðjan sem mun sjá um það verk. Að sögn Sigurðar Guðna Sigurðssonar framkvæmdastjóra Þ&E kemur þetta verkefni upp á mjög góðum tíma en veturnir hafa oft reynst erfiðir verkefnalega.