02. desember. 2003 08:16
Stróriðjuvinabæir
Bæjarstjórnir Akraness og Fjarðabyggðar samþykktu á dögunum að stofna til vinabæjatengsla. Í tilkynningu frá sveitarfélögunum tveimur segir, að tilgangur sé m.a. að koma á samstarfi íbúa sveitarfélaganna á sviði atvinnumála, íþróttamála, menningarmála, menntamála og æskulýðsmála. Akranes og Fjarðabyggð eigi margt sameiginlegt. Öflugir framhaldsskólar, útgerð og fiskvinnsla, stóriðja, blómleg menning og fjölbreytt íþróttalíf séu mikilvægir þættir á þessum stöðum. Það séu því miklir möguleikar á að þróa áhugavert og gagnlegt samstarf til hagsbóta fyrir báða aðila.
Stefnt er að því að Ólafur Þórðarson, þjálfari meistaraflokks ÍA og fleiri fulltrúar ÍA, annist námskeið í þjálfun og aðstoði við þjálfun knattspyrnumanna í Fjarðabyggð á næsta ári. Einnig er miðað að því að ráðstefna um málefni unglinga verði í Fjarðabyggð og sjái um uppihald þátttakenda frá Akranesi á ráðstefnunni. Auk þess eru áform uppi um að koma á samskiptum fyrirtækja og launþegasamtaka og stuðla að auknu samstarfi milli Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautarskóla Vesturlands á sviði verkmenntunar með hliðsjón af stóriðju. Með þessum vinabæjarsamskiptum vilja sveitarstjórnirnar hafa að markmiði að í skjóli vináttu og bræðralags verði ræktað gott samband íbúanna og sveitastjórnanna.