04. desember. 2003 12:17
Rannsókn á meintu trúnaðarbroti útvíkkuð
Eins og fram hefur komið í Skessuhorni stendur yfir lögreglurannsókn á meintu trúnaðarbroti hjúkrunarfræðings Heilsugæslustöðvarinnar í Búðardal. Rannsóknirn snýr að því hvort hjúkrunarfræðingurinn, Guðrún Jóna Gunnarsdóttir hafi í heimildarleysi farið inn í sjúkraskrár Heilsugæslustöðvarinnar. Eins og fram hefur komið neitar Guðrún Jóna sök. Hefur hún sagt að ef í ljós komi að farið hafi verið inn í skrárnar úr hennar tölvu og á hennar lykilorði, líkt og haldið er fram, þá hafi þar verið einhver annar að verki og í þeim tilgangi að koma á sig sök. Hefur nún nefnt yfirlækni stöðvarinnar, Þórð Ingólfsson, sérstaklega sem líklegan sökudólg í því sambandi.
Í framhaldi af þessum ásökunum Guðrúnar Jónu hefur skipaður framkvæmdastjóri heilsugæslustöðvarinnar Pétur Jónsson farið fram á við lögregluyfirvöld að rannsóknin beinist ekki aðeins að þætti Guðrúnar Jónu eins og upphaflega var til stofnað heldur einnig að því hvort aðrir gætu hafa átt hlut að máli í þeim tilgangi að koma sök á hana.
Pétur ítrekaði í samtali við Skessuhorn að ekki hefði verið lögð fram kæra heldur einungis farið fram á rannsókn og að sér hefði fundist eðlilegt að hún yrði útvíkkuð með áðurnefndum hætti.
Fram hefur komið að Guðrúnu Jónu hafi verið vikið frá störfum meðan rannsókn stendur yfir en aðspurður segir Pétur að aðrir starfsmenn verði ekki látnir víkja þrátt fyrir að rannsókn beinist að fleirum en Guðrúnu Jónu einnig. „Lögreglan fór fram á að hjúkrunarfræðingurinn myndi ekki gegna störfum sínum á meðan rannsóknin stæði yfir og ég ákvað að verða við því. Ég sá afturámóti ekki ástæðu til að víkja fleirum frá þrátt fyrir að rannsóknin væri útvíkkuð.“
Ekki liggur fyrir hvenær rannsókn á meintu broti hjúkrunarfræðingsins verður lokið.