21. október. 2004 08:50
Breytt fyrirkomulag vegna jarðvegslosunar á Akranesi
Bæjarráð Akraness hefur samþykkt breytt fyrirkomulag á gjaldtöku vegna losunar á moldarjarðvegi úr grunnum nýbygginga, vegna jarðvegsskipta í götum og fleira. Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari segir að í nýju gjaldskránni felist m.a. að samhliða úthlutun nýrra lóða og innheimtu byggingarleyfisgjalda verði gjaldið framvegis innheimt samhliða greiðslu byggingarleyfisgjalds. “Bærinn greiðir á hverju ári nokkrar milljónir króna vegna móttöku jarðvegs, jöfnunar og sáningar. Nú innheimtum við gjaldið samhliða úthlutun byggingarleyfis. Ef verktakar eða lóðaeigendur hinsvegar losa jarðveginn utan bæjarmarkanna eða losa hann annarsstaðar utan bæjarlandsins þá endurgreiðum við viðkomandi álagningu”. Jón Pálmi segir að gjaldið á rúmmeter sé nú 85 krónur, hafi hækkað eilítið. “Líklega þýðir þetta um 18-19 þúsund króna losunargjald fyrir hefðbundna einbýlishúsalóð.”