15. ágúst. 2013 09:01
Bæjarhátíðin Danskir dagar verður haldin í 19. sinn í Stykkishólmi um næstkomandi helgi. Á Dönskum dögum er iðulega mikið líf og fjör í bænum og margir sem sækja Stykkishólm heim, jafnt brottfluttir sem ferðamenn. Sú nýjung er að þessu sinni að Ungmennafélagið Snæfell heldur utan um framkvæmd hátíðarinnar. Blaðamaður Skessuhorns ræddi við Þóru Margréti Birgisdóttur sem er ein af skipuleggjendum hátíðarinnar. „Við viljum halda í það sem hefur gengið vel og hátíðin verður með svipuðu sniði og á síðasta ári og allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi,“ segir Þóra um hátíðina í ár. Umfangsmikil dagskrá verður um helgina og eru þar nokkrar nýjungar eins og að keppt verður í pylsuáti og mun einn hátíðargestur hljóta titilinn Pylsuátsmeistarinn. Sameiginlegt bæjargrill mun nú leysa hverfagrillin af hólmi, þótt auðvitað geti íbúar þeirra hverfa sem það vilja haldið sínar eigin grillveislur.
„Á sameiginlega grillið getur hver sem er sjálfur komið með á grillið eða keypt tilbúinn grillmat af Snæfelli. Eftir það verður haldin kvöldvaka þar sem Haffi Gúnda hefur smalað saman hópi heimamanna sem mun spila á kvöldvökunni,“ segir Þóra. Hefðbundin verðlaun verða veitt fyrir fallegasta garðinn sem og fyrir best skreytta húsið.
Margt um að vera
Meðal annarra viðburða má nefna Aksjón Lionsmanna, kraftakeppnina Orkumesta Hólmarann, Royal rangers verða með Carnival stemningu, markaðstjaldið verður á sínum stað og skottmarkaðurinn á móti Leir 7. Flugeldasýning verður aftur í boði Atlantsolíu, Stubbahlaup á laugardagsmorgninum þar sem átta ára og yngri munu hlaupa stuttan hring og fá fyrir kókómjólk og viðurkenningarskjal. Einnig verður skrúðgangan á sínum stað og Leikhópurinn Lotta verður á svæðinu. „Við erum ekki með nein aðkeypt tæki á svæðinu. Við vildum að hátíðin skilji meira eftir sig í heimabyggð og fórum því í að virkja heimamennina,“ segir Þóra. „Það verður dagskrá á mörgum stöðum og veitingahúsin og galleríin verða auðvitað opin.“ Á laugardeginum verður brekkusöngur á hátíðarsvæðinu og Páll Óskar mun spila fyrir þá yngri sem og að loka brekkusöngnum. Hann mun svo halda ball í Íþróttahúsinu um kvöldið.
Hátíðarblað Danskra daga hefur verið sett í sölu og er blaðið fullt af skemmtiefni og nytsamlegum upplýsingum um opnunartíma og dagskrá. Þóra hvetur alla hátíðargesti til að fjárfesta í blaðinu. Þóra vill að lokum koma til skila þökkum frá Snæfelli til allra þeirra sem koma að framkvæmd hátíðarinnar að einhverju leyti. Hægt er að sjá fleiri upplýsingar á Facebook síðu hátíðarinnar undir nafninu Danskir dagar 2013 og mögulegt er að ná í skipuleggjendur hátíðarinnar í póstfangið danskirdagar2013@gmail.com