16. ágúst. 2013 10:52
Annar flokkur ÍA sigraði lið ÍBV 5-1 á Akranesvelli síðdegis í gær í undanúrslitum bikarkeppni annars flokks kvenna í knattspyrnu. Skagakonur komust yfir í leiknum á 11. mínútu með marki frá Aldísi Ylfu Heimisdóttur. Skagastúlkur voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og hefðu hæglega getað náð að auka við forustu sína áður en flautað var til hálfleiks. Í síðari hálfleik sprungu leikmenn ÍA út og hreinlega völtuðu yfir Eyjastúlkur á rennblautum Akranesvellinum. Skoruðu þær gulklæddu fjögur mörk til viðbótar. Aldís bætti við sínu öðru marki á 51. mínútu áður en Guðrún Karítas Sigurðardóttir kom Skagastúlkum í 4-0 með mörkum á sitthvorri mínútunni, þeirri 68. og 69. Veislan á Akranesvelli var þó ekki alveg búin því á 81. mínútu urðu Eyjakonur fyrir því óhappi að skora sjálfmark en náðu þó að klóra í bakkann mínútu síðar og skoruðu eina mark sitt í leiknum. Lokatölur því 5-1 fyrir ÍA stúlkur í 2. flokki sem eru nú komnar í úrslit bikarsins þar sem þær mæta annað hvort Val/ÍR eða Breiðabliki 17. september.