23. ágúst. 2013 02:50
Stjórnir HB Granda hf. og Laugafisks ehf. hafa samþykkt samrunaáætlun félaganna, en Laugafiskur hefur verið í eigu Brims. Laugafiskur ehf. rekur fiskþurrkun að Breiðargötu 8 og Vesturgötu 2 á Akranesi og mun, samkvæmt tilkynningu um væntanlegan samruna, verða rekinn áfram í óbreyttri mynd. Mun starfsfólk félagsins eiga kost á að halda starfi sínu gangi samruninn eftir. Laugafiskur ehf. hefur tekið á móti um 6.500 tonnum af fiskafurðum á ári til þurrkunar og útflutnings til Nígeríu. HB Grandi hefur verið stærsti birgi Laugafisks en félagið hefur einnig selt öðrum fyrirtækjum fiskafurðir til þurrkunar. „Með aukinni landvinnslu HB Granda mun efni til þurrkunar aukast verulega frá því sem verið hefur. Mest verður aukningin á þorskafurðum (hausum og hryggjum) en þorskvinnsla HB Granda fer fram á Akranesi í næsta húsi við fiskþurrkun Laugafisks ehf. Tillaga um samrunann verður verður borin undir ódagsetta hluthafafundi félaganna,“ segir í frétt frá HB Granda.