02. desember. 2013 10:19
Á morgun, þriðjudaginn 3. desember, heldur Anna Sólrún Kolbeinsdóttir píanóleikari og nemandi við Tónlistarskóla Borgarfjarðar framhaldsprófstónleika í Reykholtskirkju og hefjast tónleikarnir klukkan 18.30. Rétt er að árétta tímasetninguna, þar sem hún misprentaðist í síðasta Skessuhorni. Á tónleikunum mun hún meðal annars leika sónötu eftir Beethoven og verk eftir Grieg. Einnig mun Lára Kristín Gísladóttir móðir hennar og Höskuldur Kolbeinsson bróðir Önnu Sólrúnar syngja við undirleik henanr. Tónleikarnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis.