04. desember. 2013 11:21
Valnefnd Lögregluskóla ríkisins hefur lokið störfum og voru 68 umsækjendur um skólavist metnir hæfir eftir að hafa staðist inntökupróf og mætt í viðtal hjá valnefndinni. Í tilkynningu frá Lögregluskólanum segir að með tilliti til áætlaðra fjárheimilda skólans hafi verið ákveðið að 16 nemendur kæmu til með að hefja nám við grunnnámsdeild skólans á næsta ári og valdi hún þá sérstaklega. Aðrir umsækjendur voru valdir sem varamenn í tiltekinni röð. „Öllum hæfum umsækjendum hefur verið sent bréf þar sem annað hvort kemur fram að þeir séu í hópi þeirra 16 umsækjenda sem valnefndin hefur valið til náms á framangreindum forsendum eða valdir sem varamenn,“ segir í tilkynningu.