09. desember. 2013 09:01
Um 46 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í nóvember í ár samkvæmt talningum Ferðamálastofu, eða um 9.500 fleiri en í nóvember á síðasta ári. Um 25,7% aukningu ferðamanna er að ræða milli ára. Frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar árið 2002 hefur árleg aukning í nóvember verið að jafnaði 14,3% milli ára. Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í nóvember frá Bretlandi (33,4%) og Bandaríkjunum (15,8%). Þar á eftir komu Norðmenn (6,0%), Þjóðverjar (5,1%), Danir (4,2%), Svíar (4,2%), Kanadamenn (3,7%) og Frakkar (3,6%). Samtals voru þessar átta þjóðir 76% ferðamanna í nóvember.
Frá áramótum hafa 740 þúsund erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 120 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur 19,5% milli ára. Um 41% fleiri Bretar hafa heimsótt landið, fjórðungi fleiri N-Ameríkanar, ríflega fjórðungi fleiri frá löndum sem flokkast undir annað og um 14% fleiri Mið- og S-Evrópubúar. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað mun minna eða um 2,4%.
Um 29 þúsund Íslendingar fóru utan í nóvember eða um 2.600 fleiri en í fyrra. Frá áramótum hafa um 340 þúsund Íslendingar farið utan eða 3.539 fleiri en í nóvember árið 2012.