Senda Skessuhorni fréttaskot
Spurning vikunnar
Hver er þinn uppáhalds mánuður
Áskrift að Skessuhorni
Færð á vegum
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
12. desember. 2013 01:01

Átaki hrundið af stað til að knapar láti ljós sitt skína

Landssamband hestamannafélaga og tryggingafélagið VÍS hafa tekið höndum saman um að auka sýnileika knapa og fáka þeirra í svartasta skammdeginu. Verkefnið gengur út á að bjóða sérvalin endurskinsmerki til sölu í tugum verslana um land allt. Til að fyllsta öryggis sé gætt er endurskinið bæði ætlað knapa og hesti þar sem þeir geta orðið viðskila. „Á síðasta áratug hefur eitt banaslys orðið þar sem ekið var á endurskinslausan knapa og hest. Jafnframt eru þess fjölmörg dæmi að næstum hafi verið ekið á hest og knapa bæði innan og utan hesthúsasvæða. Talsverð hætta er á að hross fælist þegar bíll kemur óvænt að þeim og viðbrögð þeirra þá ófyrirsjáanleg. Þétting byggðar krefst enn frekari árvekni hestamanna gagnvart sýnileika sínum. Hesthús sem áður voru langt frá byggð eru komin í eða við byggðakjarna og öll umferð í nágrenni þeirra þyngst sem því nemur,“ segir í tilkynningu frá LH.

 

 

 

Hestamenn, vinir þeirra og vandamenn geta nú auðveldlega fundið nauðsynlegar endurskinsvörur við hæfi sem jafnvel má lauma með í jólapakkann. „Hestamannafélög eru hvött til að benda félagsmönnum sínum á brýna þörf endurskins því þá sést viðkomandi allt að fimm sinnum fyrr en ella. Sá tími sem þannig gefst getur skipt sköpum. Á facebook síðu verkefnisins er hægt að nálgast upplýsingar um endurskinið og hvaða verslanir taka þátt í því,“ segir jafnframt í hvatningu öryggisnefndar LH.

Leit á vefnum
Fréttasafn
Næsta ár Fyrra ár
Mest lesið í vikunni
Aðsendar greinar
Hulda Hrönn Sigurðardóttir

Þjónusta við einstaklinga með ...

Ásmundur Einar Daðason

Ljósleiðari á hvert heimili

Bjarni Jónsson

Landsnet verði í samfélagseigu

Ólafur Óskarsson

Betri byggð, öruggari umferð

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Spilavíti eru „Víti til varnað...

Frá mbl.is

Ekki tókst að sækja efni

Frá visir.is

Ekki tókst að sækja efni

Skessuhorn á Facebook Skessuhorn á LinkedIn Skessuhorn á Twitter Skessuhorn á Instagram Skessuhorn ehf. kt. 560103-3870 - Kirkjubraut 56, 300 Akranes - Sími 433 5500 - Ritstjórn skessuhorn@skessuhorn.is