20. desember. 2013 11:35
Nítján verkefni fengu nýverið úthlutað samtals 33,5 milljónum króna úr Þróunarsjóði ferðamála. Að sjóðnum standa Landsbankinn og atvinnuvegaráðuneytið og var hann stofnaður í tengslum við verkefnið Ísland allt árið. Markmiðið með starfrækslu hans er að efla starfsemi fyrirtækja í ferðaþjónustu utan háannartíma og auka arðsemi þeirra. Þetta er í þriðja sinn sem úthlutað er úr sjóðnum og barst honum 61 umsókn að þessu sinni. Þróunarsjóðnum er ætlað að styðja við samstarfsverkefni fyrirtækja á tilteknum svæðum eða afbragðsverkefni stakra fyrirtækja undir sömu formerkjum. Þá er hvatt til samstarfs skapandi greina við fyrirtæki í ferðaþjónustu. Sjóðurinn styrkir einkum verkefnisstjórn, greiningarvinnu, undirbúning verkefna, kaup á ráðgjöf og þróun hugmynda en einnig önnur verkefni sem stuðlað geta að lengingu ferðamannatímans. Styrkir sjóðsins geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnis.
Til verkefna á Vesturlandi runnu tveir styrkir. Skagaferðir ehf. – TasteIceland, fékk eina milljón króna til að skipuleggja ferðir um Akranes og nærsveitir fyrir erlenda ferðamenn til að kynna atvinnuhætti og menningu heimamanna með áherslu á matarmenningu. Þá hlaut Sigrún Birna Einarsdóttir einnig eina milljón króna í styrk vegna verkefnisins Upplifun á söguslóð. Það miðar að því að virkja þann fjársjóð sem felst í sérstöðu Vesturlands í náttúru, alþýðumenningu og ekki síst sögulegri arfleifð með áherslu á Borgarfjörð.