06. janúar. 2014 11:01
Næstkomandi miðvikudagskvöld verður fyrsti þáttur The Biggest Loser Ísland forsýndur í Bíóhöllinni á Akranesi, en eins og Skagamenn sjálfsagt vita þá er einn keppandi þáttanna þaðan, Inga Lára Guðlaugsdóttir. Inga Lára er ein 12 keppenda sem valdir voru til þátttöku í The Biggest Loser Ísland en eins og þekkt er orðið sóttu yfir 1.300 manns um þátttöku. Keppendur æfðu fjórum sinnum á dag í tíu vikur undir leiðsögn einkaþjálfaranna Everts Víglundssonar og Gurrýjar Torfadóttur. Tökum þáttanna er að mestu lokið þó keppendur séu allir komnir heim, en lokaþátturinn fer fram í beinni útsendingu í apríl. Allir keppendur eru enn í stífu æfingaprógrammi því í lokaþættinum kemur í ljós hver keppendanna hefur staðið sig best.
Þættirnir verða sýndir á SkjáEinum frá 23. janúar. Fyrsti þátturinn er tvöfaldur að lengd og verður forsýndur Akurnesingum í Bíóhöllinni miðvikudaginn 8. janúar kl. 20.30. „Við hvetjum Akurnesinga til að fjölmenna í Bíóhöllina á miðvikudagskvöldið og sýna Ingu Láru stuðning í keppninni,“ segir í tilkynningu frá SkjáEinum.