13. janúar. 2014 08:14
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur ákveðið að banna framleiðslu á Hvalbjór frá Brugghúsi Steðja í Borgarfirði. Þetta er gert á þeim forsendum að framleiðsla á hvalmjöli uppfylli ekki skilyrði matvælalaga. Helgi Helgason, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, sagði í kvöldfréttum útvarps að niðurstaðan væri sú að allt hráefni sem notað sé til matargerðar verði að vera samkvæmt matvælalöggjöfinni og frá viðurkenndum birgjum. Helgi segir að Hvalur hf. sé ekki með starfsleyfi til framleiðslu á mjöli til matvælaframleiðslu og þar af leiðandi verði að stöðva framleiðsluna, sagði Helgi í samtali við RÚV.
Dagbjartur Ingvar Arilíusson hjá Brugghúsinu Steðja segir að menn hafi talið að hvalmjölið væri hráefni sem fyrirtækið mætti nota til bruggunar, enda hefði ekki verið farið í framleiðslu á þorrabjór Steðja að öðrum kosti. Í ljósi þess að verið væri að neyta hvalaafurða á þorrablótum og hægt væri að kaupa mjölið úti í búð hefði verið talið í lagi að nýta það til ölgerðar.