23. janúar. 2014 11:31
Vinstri hreyfingin grænt framboð í Borgarbyggð samþykkti framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar á félagsfundi sem haldinn var á Landnámssetrinu í Borgarnesi í gærkveldi. Ragnar Frank Kristjánsson á Hvanneyri mun leiða lista VG nú líkt og fyrir kosningarnar 2010. Ingibjörg Daníelsdóttir gaf hins vegar ekki kost á sér í annað sætið en saman sitja þau í sveitarstjórn fyrir hönd VG. Nýjar í öðru og þriðja sæti á listanum eru Sigríður Júlía Brynleifsdóttir í Borgarnesi og Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir í Reykholti.
Á fundinum var samþykkt samhljóða að bjóða fram eftirfarandi lista:
1. Ragnar Frank Kristjánsson
2. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir
3. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir
4. Friðrik Aspelund
5. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir
6. Stefán Ólafsson
7. Anna Berg Samúelsdóttir
8. Bjarki Grönfeldt Gunnarsson
9. Hanna Þorgrímsdóttir
10. Finnbogi Rögnvaldsson
11. Ingibjörg Daníelsdóttir
12. Sigurður Helgason
13. Guðný Dóra Gestsdóttir
14. Gunnar Jónsson
15. Ingibjörg Jónasdóttir
16. Kristberg Jónsson
17. Guðbrandur Brynjúlfsson
18. Vigdís Kristjánsdóttir.