12. febrúar. 2014 01:26
Rúmlega tuttugu manns, eða tæplega helmingur kosningabærra íbúa Skorradalshrepps, mættu á íbúafund sem haldinn var á Hvanneyri í gærkveldi. Þar var kynnt úttekt KPMG á hagkvæmni sameiningar Skorradals við nágrannasveitarfélag, Borgarbyggð eða Hvalfjarðarsveit, ellegar verða áfram sjálfstætt sveitarfélag. Könnunin hafði áður verið send á heimili íbúa í hreppnum til að þeir gætu komið betur undirbúnir fyrir kynninguna á fundinn. Davíð Pétursson oddviti sagði að kynningin á fundinum hafi að sjálfsögðu verið hlutlaus, en þar hefði m.a. komið fram það sem vitað er í dag að samskiptin hafa verið meiri við Borgarbyggð, en Hvalfjarðarsveit, og þar ráði skólamálin mestu. Atkvæðaseðlar voru einnig sendir á heimilin með skýrslu KPMG, þar sem íbúum gefst kostur á að velja á milli þriggja fyrrgreindra kosta. Davíð kvaðst vonast til góðrar þátttöku í þeirri atkvæðagreiðslu svo hún gæfi sem gleggsta mynd af vilja íbúanna. Síðustu forvöð til að póstleggja atkvæðaseðilinn er 19. febrúar næstkomandi.