26. febrúar. 2014 06:01
Eins og fram hefur komið í Skessuhorni hafa nokkuð róttækar breytingar verið gerðar á fyrirkomulagi krabbameinsleitar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Einnig er í bígerð að hefja leit að ristilkrabbameini á samskonar hátt og leitað er eftir brjósta- og leghálskrabbameini í konum. Til að kynna þessi mál betur hefur Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis boðað til kynningarfundar á sal Fjölbrautaskólans á Akranesi fimmtudagskvöldið 6. mars nk.
„Ákveðið hefur verið að leit eftir brjóstakrabbameini verði hætt á Akranesi en konur á svæðinu verða hér eftir boðaðar í skoðun á Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands í Reykjavík. Leghálsskoðun verður eftir sem áður framkvæmd á Akranesi en með einhverjum breytingum þó,“ segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélagi Akraness og nágrennis. Breytingar á fyrirkomulagi krabbameinsskoðunar á Akranesi hafa valdið nokkurri óvissu og jafnvel uppnámi hjá konum á svæðinu. „Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis hvetur því sérstaklega konur sem hingað til hafa nýtt sér þjónustuna á Akranesi til að koma og kynna sér í hverju þessar breytingar munu felast. Kristján Oddsson yfirlæknir á Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands kemur og útskýrir nánar í hverju breytingarnar felast.
Karlar eru jafnframt hvattir til að mæta á kynningarfundinn þar sem Fritz H. Berndsen, yfirlæknir handlækningadeildar HVE á Akranesi og sérfræðingur í almennum skurðlækningum, mun á fundinum fjalla um ristilkrabbamein en í bígerð er að leita eftir ristilkrabbameini á samskonar hátt og nú er leitað eftir brjósta- og leghálskrabbameinum hjá konum. Inn á milli fróðlegra krabbameinserinda verða síðan stórskemmtileg tónlistaratriði sem verða frekar auglýst er nær dregur. Vinnustaðahópar, saumaklúbbar, matarklúbbar, konur og karlar ættu því að taka frá fimmtudagskvöldið 6. mars og fjölmenna á fræðandi og skemmtilegan viðburð í FVA. Svo er ekki seinna vænna að fara að safna í mottu því mottumars er handan við hornið,“ segir í tilkynningu frá félaginu.