27. febrúar. 2014 09:27
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar 2014 er 418,7 stig og hækkaði um 0,67% frá fyrra mánuði. Án húsnæðis er vísitalan 394,9 stig og hækkaði um 0,87% frá janúar. Í tilkynningu frá Hagstofunni segir að vetrarútsölum er víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 7,1% (vísitöluáhrif 0,33%). Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 11% (0,14%) en verð á dagvörum lækkaði um 0,6% (-0,11%). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,1% og vísitalan án húsnæðis um 0,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,5% sem jafngildir 1,9% verðbólgu á ári. Ef húsnæðisþátturinn væri tekinn út væri tólf mánaða verðbólga hér á landi 0,4%.