28. febrúar. 2014 09:31
Það vantaði einungis herslumuninn hjá Snæfellingum þegar þeir heimsóttu Stjörnumenn í Garðabæinn í Dominosdeildinni í gærkveldi. Snæfell hefur oft átt í erfiðleikum með Stjörnuna og þetta var einn af þeim dögum. Leikurinn var í heildina jafn en heimamenn ávallt skrefinu á undan. Lokatölur urðu 93:88 og með sigrinum höfðu liðin sætaskipti í deildinni þótt þau séu jöfn að stigum með sextán hvort. Stjörnumenn fóru upp í sjöunda sætið en Snæfell er í því áttunda þegar þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni.
Stjörnumenn byrjuðu betur og voru tólf stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 33:21. Snæfellingar sóttu í sig veðrið, bættu varnarleikinn og hittu betur úr skotunum í öðrum leikhluta, þar sem munurinn fór niður í þrjú stig, en Stjarnan var fjórum stigum yfir í hálfleik 53:49. Munurinn fór allt niður í eitt stig í þriðja leikhluta, í stöðunni 62:61, en hélst í um fimm stigum út þriðja leikhluta. Í byrjun lokafjórðungs náðu Snæfellingar aftur að þjarma að heimamönnum í stöðunni 76:75 en lengra komast þeir ekki. Heimamenn sýndu styrk sinn á lokamínútunum og unnu fyrir sigrinum, en lokatölur voru eins og áður sagði 93:88.
Hjá Snæfelli var Travis Cohn III atkvæðamestur með 24 stig, 11 fráköst og 9 stoðsendingar, Sigurður Þorvaldsson skoraði 21 stig, Finnur Atli Magnússon 13, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 13 og 7 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 9 stig, 5 fráköst og 7 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 4 stig, Kristján Pétur Andrésson 3 og Stefán Karel Torfason 1.
Í næstu umferð fær Snæfell Ísfirðinga í heimsókn og er sá leikur á dagskrá eftir viku, á föstudagskvöld.