14. maí. 2014 10:02
Þrátt fyrir hetjulega baráttu tókst Skagakonum ekki að ná stigi í fyrsta leik sínum í Pepsídeildinni. Þær fengu Fylki í heimsókn á Akranesvöll í kvöld og töpuðu 1:0. Leikurinn var í heildina nokkuð jafn. Fylkiskonur voru sterkari í fyrri hálfleiknum og sóttu þá öllu meira. Færin voru þó fá í hálfleiknum og það var ekki fyrr en á 31. mínútu sem Halla Margrét Hinriksdóttir í marki ÍA þurfti að beita sér þegar hún varði skot úr teignum af stuttu færi.
Á 44. mínútu áttu Skagakonur mjög góða sókn og stórhætta skapaðist upp við Fylkismarkið. Maren Leósdóttir átti þá skot í stöngina og vörn gestanna tókst síðan að komast fyrir skot frá Skagastúlkum í annarri tilraun. Þarna var skammt stórra högga á milli, því Fylkiskonur fengu dauðafæri í næstu sókn og upp úr hornspyrnu afgreiddi svo Carys Howkins boltann í netið og skoraði þar með eina mark leiksins. Í seinni hálfleiknum færðist kalsinn og fræsingurinn í aukana en stúlkurnar létu það ekkert á sig fá.
Það voru Skagakonur sem voru sterkari í seinni hálfleiknum og fór leikurinn síðasta hálftímann að mestu fram á varnarhelmingi Fylkis. Það var eins og herslumuninn vantaði hjá heimastúlkum þegar þær komust upp að vítateig gestanna og leikurinn fjaraði út án þess að fleiri mörk væru skoruð. Byrjunin í Pepsídeildinni var ekki sem verst hjá ÍA liðinu og nú er bara að gera enn betur í næsta leik sem verður á þriðjudaginn kemur gegn FH í Kaplakrika.