03. júní. 2014 10:31
Sjómenn á línubátum við Snæfellsnes telja að þeir hafi orðið varir við makríltorfur undir Jökli. „Við sáum þó nokkuð af torfum sem óðu í yfirborðinu hér í gærkvöldi. Það lóðaði töluvert á þetta. Þetta líktist makrílnum. Við reyndum þó ekki að veiða neitt. Skilyrðin eru líka óvenjuleg. Sjórinn í yfirborðinu hérna við Snæfellsnesið er tveimur gráðum heitari en á sama tíma í fyrra,“ sagði Arnar Laxdal Jóhannsson skipstjóri á línutrillunni Tryggva Eðvarðs SH 2 í samtali við Skessuhorn á morgun. Hærra hitastig gæti skýrt að makrílinn er allt að mánuði fyrr á ferðinni en í fyrrasumar. Miklar væntingar eru til komandi sumarvertíðar á makríl, ekki síst vestanlands. Þaðan tóku margir bátar þátt í veiðunum í fyrrasumar og öfluðu margir vel, þar á meðal þeir á Tryggva Eðvarðs SH. Veiðar smábáta mega hefjast 1. júlí.