06. júní. 2014 09:01
Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir hefur opnað verslunina „Í dagsins önn – lífræn & vistvæn verslun“ að Aðalgötu 13 í Stykkishólmi. Þar mun hún selja lífrænar og vistvænar vörur, svo sem bökunarvörur, krydd, bætiefni og fleira. „Ég er aðallega með matvöru, sem sagt lífrænar þurrvörur en ekki kjöt og þess háttar. Ég er einnig með fullt af glútenlausum vörum og vörum sem henta þeim sem eru á LKL kúrnum. Svo er ég með húðvörur og vistvæn hreinsiefni líka. Það er allt annaðhvort alveg lífrænt eða alveg vistvænt en þetta tvennt helst reyndar oft í hendur,“ segir Kolbrún í samtali við Skessuhorn.
Kolbrún segir að töluverð eftirspurn sé eftir slíkum vörum í Stykkishólmi og því hafi hún ákveðið að opna verslunina. „Þetta er bara svar við kalli. Ég fór sjálf mikið suður til að kaupa svona vörur og var að heyra af öðru fólki sem einnig þurfti að gera það. Til dæmis foreldrum barna sem eru með glútenóþol og öðrum sem eru á LKL mataræði. Stykkishólmsbær hefur stefnt að því að verða sífellt vistvænni bær, hér flokkum við rusl og höfnin okkar er vottuð með bláfána. Mér fannst alveg vanta vistvænni hreinsiefni hérna, það er alveg í takt við stefnu bæjarins að selja slíkt,“ segir hún. Kolbrún selur einnig söl, grös og þara frá Íslenskri hollustu. „Sölin eru úr Breiðafirði, þannig að þau eru héðan úr héraði þó þessu sé pakkað í Hafnarfirðinum. Þetta eru spennandi vörur sem eru að koma sterkar inn. Fólk er að borða þetta sem snakk, sölin eru svipuð á bragðið og harðfiskur. Svo sel ég fjölskyldudagatalið mitt hérna líka. Ég hef gefið út fjölskyldudagatalið „Í dagsins önn“ síðan 2008, en þau eru til að halda utan um ferðir fjölskyldunnar og hjálpa til við skipulagningu. Þau fást einnig í bókabúðum um allt land,“ segir Kolbrún Ösp að endingu.