06. júní. 2014 03:53
Ekki er gert ráð fyrir að lögreglustjóri né sýslumaður verði staðsettir á Akranesi í hugmyndum sem fyrir liggja hjá innanríkisráðuneytinu um staðsetningu höfuðstöðva sýslumanns- og lögreglustjóraembætta á Vesturlandi. Svokölluð umræðuskjöl sem innanríkisráðherra hefur birt til kynningar og samráðs og varða reglugerðir um umdæmamörk og starfsstöðvar lögregluembætta og sýslumannsembætta voru kynnt á bæjarráðsfundi Akraneskaupstaðar þann 5. júní sl. Er þar gert ráð fyrir að aðsetur sýslumanns verði í Stykkishólmi og aðsetur lögreglustjóra í Borgarnesi.
Bæjarráð Akraness hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hugmyndunum er harðlega mótmælt. Þar segir að Akraneskaupstaður geri kröfu um að lögreglustjóraembættið, hið minnsta, verði staðsett á Akranesi. Þar sé langfjölmennasta lögregluliðið á Vesturlandi og eina lögreglustöðin á svæðinu með sólarhringsvakt enda málafjöldinn langmestur þar. Miðlæg rannsóknardeild fyrir allt Vesturland hafi verið staðsett á Akranesi frá árinu 2007 þar sem byggst hefur upp mikil sérþekking og nauðsyn þess að hafa yfirstjórn lögreglu og rannsóknardeild á sama stað sé augljós og öllum kunn. Fram kemur í tilkynningunni að Akranes sé langfjölmennasti byggðakjarninn á Vesturlandi með tæplega 7 þúsund íbúa, að Grundartangi sé í næsta nágrenni, þar sem á annað þúsund manns starfa daglega. Auk þess séu tvær hafnir með mikla starfsemi á svæðinu.
„Hugmyndir innanríkisráðuneytisins eru með öllu óásættanlegar fyrir íbúa á Akranesi og verður ekki við unað,“ segir að lokum í tilkynningu bæjarráðs.