13. júní. 2014 06:33
Brot 55 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi í dag í vöktunarátaki lögreglu. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Klébergsskóla. Á einni klukkustund eftir hádegi fóru 438 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% of hratt eða yfir afskiptahraða eins og það er kallað. Meðalhraði hinna brotlegu var 82 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100.