19. júní. 2014 06:01
Um þessar mundir eru 800 ár frá fæðingu Sturlu Þórðarsonar sagnaritara. Þessara tímamóta verður minnst á Sturluhátíð sunnudaginn 27. júlí, en Sturla fæddist 29. júlí 1214. Hátíðin verður haldin í samkomuhúsinu Tjarnarlundi í Saurbæ sem er í landi Staðarhóls þar sem Sturla bjó lengi ævinnar. Það er sveitarstjórn Dalabyggðar sem stendur fyrir hátíðinni sem hugsuð er sem fyrsta skref í stóru verkefni sem er að koma upp Sturlusetri í Dölum. Vegna Sturluhátíðar hefur verið skipuð þriggja manna undirbúningsnefnd. Í henni eru Svavar Gestsson fyrrverandi alþingismaður, Sigurður Þórólfsson bóndi í Ytri-Fagradal og Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur á Níp á Skarðsströnd. Með þeim starfar Þórunn María Örnólfsdóttir mastersnemi í sagnfræði en hún er frá Akranesi. Henni er ætlað að vera tengiliður í samstarfi Háskóla Íslands og Dalabyggðar í sumar.
Í Skessuhorni vikunnar er rætt við Svavar Gestsson og Þórunni Maríu um Sturluhátíð og fleira því tengt.